Skýr sýn til framtíðar

67

Við viljum þakka öllum sem tóku þátt í málaefnafundunum með okkur frambjóðendum Framsóknar og stuðningsfólki en þeir voru fjórir talsins og tilgangur þeirra var að móta málefnaskrá framboðsins.  Samræðurnar hafa verið afar dýrmætar og við höfum fengið að heyra beint frá íbúum hvað skiptir mestu máli.

Við viljum færa öllum þeim sem tóku þátt innilegar þakkir. Á fundunum höfum við fengið að heyra beint frá íbúum hvað skiptir þá mestu máli í daglegu lífi og til framtíðar. Sú nálægð við sjónarmið fólks í sveitarfélaginu er lykilatriði þegar byggja á upp trausta og raunhæfa stefnu.

Það sem stendur upp úr er að íbúar kalla ekki aðeins eftir ákveðnum framkvæmdum, heldur leggja ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, opið samtal og að ákvarðanir séu teknar með heildarhagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Þetta eru skýr skilaboð sem við tökum með okkur inn í áframhaldandi vinnu.

Í kjölfar fundanna blasir við að endurskoða þarf verklag í skipulagsmálum, fara yfir gjöld og álögur með það að markmiði að létta undir með heimilum og vinna markvisst að uppbyggingu innviða. Sú uppbygging þarf að vera bæði ábyrg og skynsöm.

Nú er komið að næsta skrefi. Þann 10. apríl opnum við kosningaskrifstofu að Vesturbraut 2 þar sem við munum kynna málefnaskrá okkar fyrir komandi kjörtímabil og halda áfram samtalinu við íbúa.

Við getum þó með mikilli ánægju greint frá einni ákvörðun sem við höfum þegar tekið.  Hjalti Þór Vignisson er bæjarstjóraefni okkar. Við þurfum skýra og sterka forystu fyrir verkefnin framundan.

Frambjóðendur Framsóknar og stuðningsmanna í Sveitarfélaginu Hornafirði