Prófkjör hjá Framsókn í Suðurkjördæmi

379

Alls eru átta í framboði hjá Framsóknarflokknum í Suðurkjördæmi í prófkjöri sem fram fer 19. júní. Kosið verður um fimm efstu sætin á lista flokksins fyrir komandi alþingkosningar.

Kosið verður í lokuðu prófkjöri á 22 kjörstöðum vítt og breytt um kjördæmið. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður 15. júní, 16. júní og 18. júní. Kjörstaði má finna á www.framsokn.is Talning fer fram 20. júní.

Framsókn náði tveimur þingmönnum á þing í Suðurkjördæmi í síðustu kosningum þeim Sigurði Inga Jóhannssyni,  formanni  Framsóknar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Silju Dögg Gunnarsdóttur alþingismanni.

Í framboði eru:

Sigurður Ingi Jóhannsson, Hrunamannahreppi – sækist eftir 1. sæti

Jóhann Friðrik Friðriksson, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti

Silja Dögg Gunnarsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti

Daði Geir Samúelsson, Hrunamannahreppi– sækist eftir  2.- 4. sæti

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Árborg – sækist eftir 3. sæti

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 3.- 4. sæti

Njáll Ragnarsson, Vestmannaeyjum – sækist eftir 3.- 4. sæti

Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, Vík í Mýrdal – sækist eftir 3.- 5. sæti

Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna hér: https://framsokn.is/wp-content/uploads/2021/06/framsokn-sudurkjordaemi-Kynningarbaeklingudur-profkjor-2021.pdf

Hvetjum alla þá sem hafa kosningarétt til að nýta sér hann og taka þátt í að móta framboðslista haustsins.