Gleðilegt nýtt ár og velkomin á Leiðarhöfða!
Um leið og við óskum íbúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar gleðilegs árs og þökkum fyrir hið liðna viljum við kynna nýja vefsíðu sem við höfum sett á laggirnar. Leiðarhöfði er vefsíða sem Framsóknarfélag Austur Skaftafellinga og bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins og stuðningsmanna þeirra í Sveitarfélaginu Hornafirði standa að. Hér mun vera vettvangur fyrir fréttir af starfi félagsins, bæjarfulltrúanna og nefndarmanna – auk þess hvað er á döfinni og /eða í undirbúningi. Það er okkar markmið að með þessu fái íbúar betri möguleika á að fylgjast með störfum okkar og koma athugasemdum og ábendingum til okkar.