Framsókn og stuðningsmenn 2026

97

Framboðslisti Framsóknar og stuðningsmanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí nk. í Sveitarfélaginu Hornafirði var samþykktur á vel sóttum félagsfundi miðvikudagskvöldið 25. febrúar sl. 

Listinn er skipaður öflugum og fjölbreyttum hópi fólks með mismunandi bakgrunn, reynslu og þekkingu. Hér fer saman reynsla þeirra sem hafa starfað lengi að sveitarstjórnarmálum og kraftur nýrra frambjóðenda sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Þessi blanda tryggir bæði reynslu, kraft og nýja sýn inn í komandi kjörtímabil.

Framundan er málefnastarf þar sem frambjóðendur bjóða íbúum sveitarfélagsins að koma sínum málefnum á framfæri og taka þátt í að móta áherslur framboðsins.

Fylgið okkur á https://www.facebook.com/xbhornafjordur/

Áfram Framsókn, X-B í kosningunum 16. maí!

Stjórn Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga.