FAS er framtíðin

78

Sveitarfélagið okkar er einstakt á svo marga vegu. Hér hefur samfélagið mótast af tengslum við náttúruna og sjóinn en ekki síst af fjarlægðum sem setja okkur sérstakar skorður, en skapa líka tækifæri. Við þurfum að vera sjálfum okkur nóg á margan hátt og við þurfum að tryggja góða grunnþjónustu í sveitarfélaginu því það er langt fyrir okkur að sækja þjónustu annað.

Ein af lykilforsendum þess að samfélagið okkar dafni er að ungt fólk vilji byggja hér framtíð. Það er mikilvægt að unga fólkið okkar hafi kost á að halda áfram námi í heimabyggð að loknum grunnskóla. Þetta snýst um jöfn tækifæri til náms en líka um byggðarsjónarmið. Þegar ungt fólk getur menntað sig heima fyrir aukast líkurnar á að það sjái fyrir sér framtíð hér, setjist að og styrki samfélagið til lengri tíma.

Jafnvel þegar nemendur fara í frekara nám síðar, til dæmis í háskóla, eru meiri líkur á að þeir snúi aftur ef tengingin við heimabyggðina er sterk. Framhaldsskólinn er þar lykilhlekkur.

Skólinn sem hjarta samfélagsins

FAS er ekki aðeins menntastofnun, hann er einn af hornsteinum samfélagsins. Starfsemi hans hefur áhrif langt út fyrir kennslustofurnar; á íþróttalíf, menningarlíf, atvinnulíf og félagslíf almennt. Hann styrkir fjölbreytni og lífsgæði og gerir samfélagið okkar aðlaðandi fyrir íbúa á öllum aldri.

Einnig gegnir skólinn mikilvægu hlutverki í íslenskukennslu og menningarnámi fyrir fólk með annað móðurmál, sem er lykilatriði í að byggja upp sterkt og samheldið samfélag. Mikilvægur þáttur í náminu er talþjálfun og þar geta félagsheimilin okkar nýst vel sem samkomustaður fyrir nemendur í dreifbýlinu þar sem fólk hittist fyrir tilstilli FAS og æfir sig að tala íslensku og verða um leið virkari þátttakendur í samfélaginu.

Til þess að Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu geti blómstrað þurfum við að horfa fram á við og efla hann markvisst. Við þurfum að bjóða upp á öflugt bók- og verknám sem tengist atvinnulífi svæðisins. Skólinn hefur nú þegar hafið samstarf við Verkmenntaskóla Austurlands varðandi námsframboð, sem lofar mjög góðu, auk þess að vera í samstarfi við skóla á austurlandi í tengslum við félagslíf nemenda sem er að sjálfsögðu stór partur af framhaldsskólalífinu. Þetta þarf að styrkja enn frekar.

samfélaginu, en kallar jafnframt á aukið samstarf við aðra skóla og atvinnulíf. Það samstarf þarf að efla, án þess þó að fórna sjálfstæði skólans.

Við vitum að nemendur frá FAS koma vel undirbúnir til frekara náms og starfa. Það er skýr vitnisburður um öflugt starf kennara og starfsfólks.

Horft til framtíðar

Markmiðið ætti að vera skýrt, að stærstur hluti ungs fólks á framhaldsskólaaldri í Sveitarfélaginu Hornafirði sjái hag sinn í að stunda nám í FAS. Jafnframt eigum við að laða hingað nemendur úr nágrannasveitarfélögum.

Til þess þarf að byggja upp aðlaðandi námsframboð en sterkir innviðir skipta einnig höfuðmáli. Heimavist eða nemendaíbúðir sem hægt er að nýta til skemmri eða lengri tíma, geta skipt sköpum fyrir aðgengi og jafnræði í menntun fyrir nemendur sem ekki búa á Höfn. Að þessu þurfum við sem ætlum að vera fulltrúar íbúanna í bæjarstjórn til næstu fjögurra ára að vinna að ásamt fulltrúum FAS. Tækifærin eru fjölmörg.

Þó rekstur framhaldsskóla sé ekki lögbundið verkefni sveitarfélagsins er augljóst að stuðningur við hann er fjárfesting í framtíðinni. Stuðningur okkar fulltrúa í bæjarstjórn getur falist í virku samtali við starfsmenn og nemendur, þátttöku í umræðu um þróun skólans, virkri hagsmunagæslu gagnvart ríkinu, samvinnu í húsnæðismálum og fleiru.

Það er ljóst að án skólans myndi aðgengi að framhaldsmenntun skerðast verulega, með alvarlegum afleiðingum fyrir búsetu, atvinnulíf og samfélagið allt.

Kröftugur stuðningur við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu er ekki valkostur, hann er nauðsyn. Þetta er sameiginlegt hagsmunamál okkar allra.

Við erum ekki aðeins að fjárfesta í skóla. Við erum að fjárfesta í fólkinu okkar, framtíðinni og samfélaginu sem við viljum búa í.

Fyrir hönd frambjóðenda Framsóknar og stuðningsmanna í Sveitarfélaginu Hornafirði

Ingibjörg Sveinsdóttir, 2.sæti