Dagur Tónlistaskólannna

65

Haldið var uppá Dag Tónlistaskólanna, sem er 7. febrúar í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu í Sindrabæ í gær með opnu húsi og tónleikum. Tónleikarnir voru í þremur áföngum frá kl. 11 – 14. 

Það var gaman að hlusta á nemendur tónskólans spila og syngja af tærri snilld. Mörg hver að stíga sín fyrstu skref á sviði við tónlistarflutning og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni. 

Þá var ekki síður ánægjulegt að njóta þess að ganga um húsið og sjá þær endurbætur sem hafa átt sér stað og fer nú loksins að sjá fyrir endann á.

Endurbætur á Sindrabæ hafa tekið langann tíma og, já alltof langan tíma. Enginn ágreiningur var í bæjarstjórn um að fara í þennan loka áfanga endurbótanna enda lá hönnun þeirra fyrir frá því verkið var boðið út árið 2021. Þá barst ekki ásættanlegt tilboð í verkið svo útboð var endurtekið 2024.

Einum verkþætti, tæknibúnaði tengdum hljóðkerfi er þó enn ólokið en bæjarráð gaf heimild til að fara í örútboð á þeim þætti í vikunni sem leið.

Vonandi mun það útboð ganga vel svo hægt sé að ljúka verkinu sem allra fyrst og bæta með því enn frekar aðstöðu nemenda og kennara Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu og annarra sem nýta húsið.

Til hamingju með Dag Tónlistaskólanna og takk fyrir góða skemmtun kæru nemendur og kennarar Tónskóla A-Skaft.

Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi Framsóknar