Kórónufaraldurinn hefur sett atvinnulífið í uppnám en sveitarfélagið er fjárhagslega sterkt og vel í stakk búið til að ráðast í miklar framkvæmdir til að örva atvinnu í héraðinu. Munum líka að þetta er tímabundið ástand. Svæðið hefur mikla sérstöðu og verður áfram sterkur segull fyrir ferðamenn þegar fram líða stundir.
Það eru þrátt fyrir allt talsverð umsvif í samfélaginu. Ekki ber á öðru en að verkefni séu góð hjá iðnaðarmönnum. Einstaklingar byggja hús sem aldrei fyrr og í smíðum eru brýr í Suðursveit sem heimaverktakar koma að.
Framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.
Í ár er gert ráð fyrir að sveitarfélagið framkvæmi fyrir nálægt 800 miljónir og litlu minna árið 2021. Á fjögura ára tímabili verða framkvæmdir meira en 2 miljarðar króna. Fjárhagurinn leyfir þessar framkvæmdir. Árið 2019 skilaði sveitarfélagið 468 miljón króna hagnaði og skuldirnar eru litlar.
Helstu framkvæmdir í ár eru upphaf á byggingu nýs hjúkrunarheimilis sem ljúka á árið 2022, breyta á húsnæði gamla Krakkakots fyrir málefni fatlaðs fólks, Mikilgarður fær 40 miljónir og síðan 20 miljónir á hverju ári til 2023 og endurbætur á Vöruhúsi halda áfram. Þá verður fjármagn lagt til endurbóta á Sindrabæ sem halda áfram næstu 2 árin. Hafist verður handa við endurbætur á Hafnarbraut sem lýkur á næsta ári.
Sjávarútvegurinn burðarás
Loðnubrestur annað árið í röð hjálpar ekki til í stöðunni og humarkvóti hefur dregist mikið saman. Þrátt fyrir það stendur sjávarútvegur sterkt á staðnum. Fjárfestingar í nýjum skipum og vinnslulínum gera það kleift að hægt er að sækja á fjölbreytta markaði um allan heim. Þrátt fyrir að veitingahús séu víðast hvar lokuð í heiminum er mikið verslað í stórkmörkuðum. Með fjölbreyttri vinnslu er hægt að bregðast við slíkum sveiflum.
Öll él birta upp um síðir
Ríki og sveitarfélög þurfa að gera það sem í þeirra valdi stendur til að verja störf og afkomu heimila og fyrirtækja. Nú þegar hefur ríkið sett fram aðgerðapakka og von er á fleirum. Öll él birta upp um síðir en mikilvægast nú er að hlúa að þeim sem minnst mega sín í þessu ástandi.
Kristján S. Guðnason, formaður atvinnu- og menningarmálanefndar