Ási spyr sig – Hvar skal byrja?

1387

Nýtt íþróttahús. Ég hef undafarna mánuði setið á mér, vonað að meirihluti bæjarstjórnar sjá hverskyns glapræði það er að fara út í þessar íþróttahúsbyggingu sem ég tel að ætti ekki að vera forgangs verkefni heldur líkamsrækt. Ef menn skoða aldursdreifingu, stærð árganga og notkun á þeirri íþróttaaðstöðu sem nú þegar er til staðar, tæp 20% tíma í íþróttarhúsinu voru ekki notaðir fyrir áramót, ég hélt að þetta yrði það sem ég væri að ræða um þennan veturinn en ekki staðsetningu á íþróttarhúsi. 

Ekki er öll vitleysan eins

Ég hlustað á formann bæjarráð á bæjarstjórnarfundi númer 334 sem haldin var 10. apríl og svo las ég grein sem kom frá bæjarstjóranum sama dag. Þar voru bæði tölur, myndir og gröf sem „sérfræðingur“ sveitafélagsins útbjó. Röksemdafærslurnar sem fyrir mann eru bornar eru vægast sagt léttvægar og ganga aðallega út á hvað viðbygging er slæmur kostur og mikil fyrirhöfn, engin sannfæring fyrir því hvers vegna stakstætt hús er það rétta.

Samtal-samráð og faglegheit

Formaður bæjarráðs telur nefndina hafa haft samráð við hina ýmsu hagsmunaaðila en þeir upplifa samtal en ekkert samráð. Hinir ýmsu starfsmenn bæjarins hafa verið að skrifa sig frá þessu svo að þeirra fingraför verði ekki á málinu, þeim finnst ekkert á sig hlustað og upplifa sig útskúfaða ef þeir eru ekki á sömu bylgjulengd og meirihlutinn, slík eru faglegheitin við þessa ákvörðun.

Leið A eða C

Rétt er að benda á að flestir hagsmunaaðilar sem hafa opinberað skoðun sýna á þessari framkvæmd eru hlynntir viðbyggingu (leið C) fyrir því eru mörg rök, bæði notkunargildi og fjárhagsleg. Ætla ég að benda á kosti og galla þessarar framkvæmdar út frá mínum bæjardyrum

Leið A kostir

Ég læt Sigurjón um að benda á kost samanber grein 10 apríl, þetta eru kostirnir að hans mati:

Þar yrði gott og stutt aðgengi frá bílastæðum. Byggingin myndi veita skjól á svæðinu og sambyggð stúka mun bæta upplifun áhorfenda á íþróttaviðburðum. Talið er að þessi staðsetning tengi Báruna betur við svæðið og bæti götumynd Víkurbrautar. Þá er rétt að benda á að þeir kostir sem oft eru nefndir í tengslum við viðbyggingu, svo sem myndun samfélagslegrar miðju með góðri innanhústengingu milli sundlaugar, grunnskóla og íþróttahúss, eru ekki útilokaðir þótt stakstætt hús verði fyrir valinu. Slíka tengingu og frekari þróun svæðisins væri hægt að útfæra í síðari byggingaráföngum eftir að nýtt íþróttahús á æfingasvæðinu er risið.

Á sumrin eru SV og SA ríkjandi vindáttir, svo skjólið er ekkert eða lítið. Þar fyrir utan man ég ekki hvort núverandi áhorfendastæði hafa einhveratíma verið full.

Leið A ókostir

  • Grunnskólinn kominn í enn eina bygginguna, bygging númer 6 eða 7 eftir því hvernig menn telja lengda viðveru.
  • Nýtist ekki unglingastiginu í frímínútum. 
  • Æfingarsvæði knattspyrnu verður ekkert sunnan við Víkurbrautar.
  • Byggingarkostnaður mikið dýrari (skýrsla Verkís) ef menn telja sig geta lækkað leið A þá er örugglega hægt að lækka leið C.
  • Rekstrarkostnaður er meiri þar sem við erum með fleiri útveggi að kynda og áhöld samnýtast ekki. 
  • Þrjár stakstæðar íþróttabyggingar með sitthvorn innganginn og enga samanýtingu á starfsfólki. Forstöðumaður íþróttamannvirkja telur að þetta útheimti 1,5 stöðugildi ca 15.000.000kr á ári með sköttum og skyldum.
  • Útheimtir miklar og dýrar framkvæmdir síðar til að tengja þetta grunnskólanum, framkvæmdir sem eru á þeim skala að við skattgreiðendur í sýslunni ættum að fara að grafa eftir gulli sem fyrst.

Leið C Kostir

  • Nýtist grunnskólanum vel.
  • Nýtist íþróttafólki og notendum íþróttamannvirkja vel. Myndar samfélagsmiðju fyrir þá sem sækja íþróttamannvirkin heim. Sami inngangur fyrir alla. 
  • Veitir skjól fyrir NA áttinni í sundlauginni.                                                                     
  • Styttra fyrir börnin í íþróttir.
  • Ódýrara í byggingu – eftir því sem Verís reiknar
  • Ódýrara í rekstri.

Leið C ókostir

  • Smávægilegir skuggar þegar sól er lágt á lofti (sjá fylgiskjal, skuggavarp).                               

Verk athygli á að þetta er snemma um morgun á sumarsólstöðum (hvet fólk til að skoða fylgiskjöl)

  • Gæti orðið röskun á íþróttastarfi þegar sagað er á milli ef menn gera það ekki að sumri til.
  • Færsla á fótboltavellinum mun kosta eitthvað en þar er hvort sem er verið að tala um að leggja gervigras og því mun þurfa að fara í framkvæmdir við fótboltavöllinn og því ætti þessi auka kostnaður að verða óverulegur. Þá mun þurfa að leggja nýja tartanbraut en ekki er gert ráð fyrir því í núverandi hugmyndum meirihlutans. 
  • Mikið verið rætt um að allur sundlaugargarðurinn verði undir á framkvæmdatímanum. Það eru ýmsar leiðir við að útfæra það en vissulega er komin veruleg viðhaldsþörf í sundlaugargarðinum svo búast má við að hann verði að einhverju leyti undir á næstu árum þegar kemur að viðhaldi. 

Mítur, ágiskanir og hugarburðurÞegar þeim rökum er beitt að skuggavarp sé svo mikið bið ég fólk að skoða fylgiskjal með þeim upplýsingum, einnig er rétt að benda á að miðsvæðið verður stærra en Austurvöllur þó svo byggt verði við íþróttahúsið. Á Austurvelli hafa verið allt að 5000 þúsund mans í einu. Það verða miklir möguleikar til að þróa miðsvæðið áfram kjósi menn svo. Ágiskanir um hættur, tafir og auka kostnað er erfitt að svara en talnaleikfimi og hræðsluáróður um allt og ekkert er vel þekkt í pólitík. Aðgengi verður ekki verra en núna að íþróttahúsinu þó það verði stækkað og einhverjar verða hætturnar þegar og ef einhvertíman yrði byggt á milli Heppuskóla og þessa stakstæða íþróttahús sem fáir vilja, allavega fáir umsagnaraðilar. Umræða um að aðgengi fyrir byggingaraðila verði erfitt ef byggt verður við tel ég ekki rétt. Aðgengi er fyrst og fremst úrlausnarefni. Það verður ekki síður erfitt að bygga íþróttahús ofan í Víkurbrautinni og fótboltavellinum. Þá hefur meirihlutinn talað um erfitt aðgengi barna milli Heppuskóla og Hafnarskóla á byggingartíma, verði byggt við en það tel ég fyrst og fremst úrlausnarefni. Það er ekkert mál að gera góða gönguleið austan Valgeirsstaða niður íþróttavöllinn og nota austurinnganginn við íþróttahúsið. 

Íbúakosning

Í baklandi núverandi meirihluta bæjarstjórnar er fólk sem var hávært um íbúakosningu á síðasta kjörtímabili um mál sem var borðleggjandi fyrir samfélagið. Það veldur mér undrun að það skuli ekki hvetja til þess að þetta mál fari í þann farveg, þetta er mál að þeirri stærðargráðu að það hlýtur að vera krafa okkar kjósenda að sem mest samstaða náist um það. Að kýla þetta áfram í ágreiningi við skólasamfélagið og íþróttahreyfinguna eru forkastanleg vinnubrögð. Að skuldsetja okkur um milljarða að illa ígrunduðu máli er grafalvarlegt.

Að lokum

Stýra vinnu og leita hagkvæmustu og bestu lausna við hönnun, byggingu og rekstur hússins.

Þetta er fyrsta málsgreinin í erindisbréfi stýrihópsins og að mínum dómi er ekki hægt að færa rök fyrir því að þetta sé haft í hávegum þegar þessi ákvörðun er tekin sem mér sýnist verða ofan á. Ef stúka fyrir fótboltavöllinn eru að verða helstu rökin fyrir þessari ákvörðun þá væri nær að byggja stúku fyrir ca. 50 milljónir, það sparast fyrir henni á ca. 3 árum í rekstri ef menn byggja við núverandi íþróttahús.

Fylgiskjöl:

Erindisbréf : https://www.hornafjordur.is/media/auglysingar/Erindisbref-bygginganefndar-nys-ithrottahuss.pdf

Teikningar, A og C: https://www.hornafjordur.is/media/auglysingar/Tillaga-A_240902-.pdf

https://www.hornafjordur.is/media/auglysingar/Tillaga-C_240902-.pdf

Kostnaðaráætlun, Verkís: https://www.hornafjordur.is/media/auglysingar/Kostnadrgreining-a-tillogum-ithrottamannvirkja-ID-437327-.pdf

Skuggavarp: https://www.hornafjordur.is/media/auglysingar/2229_13-Skuggavarp-ofl-i-binder.pdf

Grein Sigurjóns, bæjarstjóra: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn/framkvaemdir-a-ithrottasvaedi

Ásgrímur Ingólfsson, skattgreiðandi, Höfn í Hornafirði.