Stjórnsýsla
Við munum berjast fyrir að:
- Auglýst verði eftir bæjarstjóra og hann ráðinn úr röðum umsækjenda. Við leggjum áherslu á að bæjarstjórinn, ásamt öðru forystufólki sveitarfélagsins, láti að sér kveða og tali máli sveitarfélagsins, þannig að eftir sé tekið á landsvísu. Bæjarstjórinn þarf jafnframt að geta átt góð samskipti við íbúa sveitarfélagsins og leitt mál sem koma upp á borð bæjarstjórnar farsællega til lykta.
- Byggð verði upp öflug og opin stjórnsýsla með skýrum verkferlum.
- Auka þátttöku íbúa í ákvarðanatöku með auknu íbúalýðræði og viðhorfskönnun meðal íbúa um ýmsa þætti í þjónustu sveitarfélagsins.
- Sveitarfélagið verði eftirsóttur vinnustaður þar sem meðal annars er vel hugað að sí- og endurmenntun starfsmanna auk heilsueflandi þátta.
- Lækka fasteignaskatta á heimili í sveitarfélaginu.
Atvinnu- og samfélagsþróun
Við munum berjast fyrir að:
- Sveitarfélagið eigi gott samstarf við hagsmunafélög atvinnugreina í heimabyggð.
- Stutt verði dyggilega við rannsóknir, nýsköpun og þróun.
- Haldið verði áfram uppbyggingu á tækjakosti matarsmiðjunnar í samvinnu við fyrirtæki og einstaklinga.
- Stutt verði við starf félagasamtaka í sveitarfélaginu, s.s. kóra, leikfélaga, kvenfélaga, björgunarfélaga, umhverfissamtök og önnur félög sem vinna markvisst að því að gera gott samfélag betra.
- Gerð verði könnun á húsnæðisþörf í sveitarfélaginu í heild, á meðal allra aldurshópa.
Hafnarmál
Við munum berjast fyrir að:
- Nægt fé fáist til rannsókna á Grynnslunum.
- Gerð verði verkáætlun um varanlega lausn á innsiglingunni með hliðsjón af rannsóknum.
- Viðhaldi og uppbyggingu hafnarmannvirkja haldið áfram.
- Umhverfi hafnarinnar verði til fyrirmyndar.
Velferðarmál
Við munum berjast fyrir að:
- Bygging nýs hjúkrunarheimilis verði sett í forgang.
- Bæta aðgengi að sérfræðiþjónustu á sviði geðheilbrigðis fyrir alla aldurshópa.
- Lögð verði áhersla á auknaheilsueflingu og heimaþjónustu fyrir þá sem þurfa.
- Byggja upp góða aðstöðu fyrir fatlað fólk að Víkurbraut 24.
- Atvinnumál fatlaðs fólks og fólks með skerta starfsgetu verði efld.
Menningarmál
Við munum berjast fyrir að:
- Stutt verði við frumkvöðla í menningarstarfsemi í sveitarfélaginu.
- Auka viðhald og notkun félagsheimila í sveitum til að efla menningar- og félagslíf þar.
- Eyðibýli verði merkt.
- Mikligarður verði endurbyggður í áföngum í samstarfi opinberra aðila, einstaklinga og fyrirtækja með það að markmiði að húsið þjóni fjölþættu hlutverki fyrir atvinnu- og menningarlíf á staðnum.
- Gripir byggðasafnsins verði sýnilegir.
- Sjóminjasýning í Skreiðarskemmu verði endurbætt, efni hennar aukið og samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð um rekstur hennar haldið áfram.
Nýir íbúar
Við munum berjast fyrir að:
- Allir þjónustunotendur, bæði núverandi og nýir Hornfirðingar, séu upplýstir um réttindi sín og að upplýsingar séu reglulega uppfærðar, skýrt fram settar og á auðlesnu máli.
- Að nýjum íbúum sé kynnt félagsstarf sem í boði er í héraðinu.
- Skapaður verði vettvangur, þar sem m.a. verkefnastjóri fjölmenningar, fulltrúar skólanna, íbúar, auk fulltrúa úr atvinnulífinu vinna að aukinni þátttöku nýrra íbúa í samfélaginu.
- Bókasafnið verði fjölmenningarbókasafn.
Umhverfis- og skipulagsmál
Við munum berjast fyrir að:
- Sveitarfélagið verði í fararbroddi í loftslagsmálum og náttúruvernd.
- Sorphirða fyrir heimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu öllu verði endurskoðuð.
- Unnið verði áfram að markvissri sorpflokkun.
- Sveitarfélagið taki frumkvæði við mótun skipulags og uppbyggingar á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs í sveitarfélaginu.
- Sveitarfélagið taki frumkvæði við mótun skipulags við Jökulsárlón með hagsmuni lítilla og meðalstórra fyrirtækja að leiðarljósi.
- Lokið verði við uppbyggingu á fráveitu.
- Hreinsunarvika verði haldin í sveitarfélaginu á hverju vori.
- Komið verði upp góðu kerfi við hreinsun rotþróa í sveitum.
- Lagfæra götur og gangstéttir þar sem Hafnarbraut frá ráðhúsi niður að höfn verður í forgangi.
- Bæta og viðhalda leikvöllum.
- Halda áfram uppbyggingu gönguleiða og stíga í sveitarfélaginu.
- Bæta aðgengi fyrir fatlað fólk í sveitarfélaginu.
Skólamál
Við munum berjast fyrir að:
- Hlúð verði að innra starfi skólanna eftir mikla uppbyggingu á mannvirkjum undanfarin ár.
- Þær áskoranir sem eru í mönnunarmálum leik- og grunnskóla verði settar í forgang.
- Áherslur á fjölmenningu verði auknar á öllum skólastigum.
- Hlúð verði að starfsemi Grunnskólans í Hofgarði.
- Smiðjur í Vöruhúsinu verði efldar enn frekar.
- Staðinn sé vörður um öflugt og fjölbreytt framhaldsnám í sveitarfélaginu.
- Aðgengi fjarkennslu fyrir allan aldur sé bætt.
- Samþætta eftir aðstæðum skólaakstur og tómstundastarf barna í dreifbýli að skóla loknum
Íþrótta- og tómstundamál
Við munum berjast fyrir að:
- Tekin verði næstu skref í uppbyggingu íþróttamannvirkja eftir víðtækt samráð við íþróttahreyfinguna og skólasamfélagið.
- Öllum standi til boða fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf.
- Koma til móts við aukinn kostnað foreldra í dreifbýli vegna aksturs barna í íþrótta- og tómstundastarf á Höfn.
- Stuðningur sveitarfélagsins við æskulýðs- og íþróttastarf sé að hluta skilyrt til forvarnarstarfs.
- Samstarf bæjarstjórnar og ungmennaráðs verði markvissara.