Við búum í öflugu og góðu samfélagi sem hefur margt fram að færa. Til að tryggja áframhaldandi vöxt og lífsgæði þurfum við hins vegar að vera samkeppnishæf til framtíðar. Það krefst þess að við vinnum markvisst að uppbyggingu grunninnviða sem styðja við daglegt líf íbúa og aðdráttarafl svæðisins. Við viljum horfa til 10 ára og mynda breiða sátt með öðrum framboðum um þá áætlun. Eftirfarandi er innlegg okkar í þá umræðu en umfjöllun ekki tæmandi í stuttri grein sem þessari.
Verum stórhuga en skynsöm
Á Höfn eru forgangsverkefnin skýr. Fyrst þarf að taka afstöðu til framtíðar íþróttahúss, þar sem gögn benda til þess að hagkvæmast sé að byggja við núverandi hús. Við viljum ekki gefa afslátt á kröfum sem slíkt hús þarf að uppfylla en gögn benda til að sambyggt íþróttahús spari verulegar fjárhæðir í uppbyggingu og rekstri. Þannig getur núverandi hús nýst fyrir fimleika og í öðrum fullbúnum og viðurkenndum sal geta aðrar íþróttagreinar verið stundaðar.
Horfum til framtíðar
Það þarf að setja uppbyggingu íþróttavallar með gervigrasi og lýsingu í forgang samhliða nýju íþróttahúsi. Einnig er mikilvægt að ráðast í byggingu millibyggingar milli sundlaugar og íþróttahúss til að skapa heildstæða íþrótta- og skólamiðstöð. Þá er búið að hanna nýja líkamsræktaraðstöðu við sundlaugina og fátt því til fyrirstöðu að hægt sé að hefja framkvæmdir við hana án mikils viðbótar undirbúnings eða fyrirvara.
Í samhengi íþrótta og lýðheilsu er mikilvægt að gangstéttir, göngustígar og opin svæði verði góð og aðgengileg til að fólk komist um gangandi og hjólandi án erfiðleika.
Hlúum að dreifbýlinu
Í Öræfum hefur íbúum fjölgað og ljóst er að þörf er á bættri aðstöðu til íþrótta og tómstunda fyrir alla aldurshópa. Slík uppbygging er mikilvæg til að efla samfélagið þar sem fólk hefur ekki greiðan aðgang að þjónustu utan heimabyggðar.
Skólarnir þurfa fjármagn
Skólahúsnæði er einn af hornsteinum samfélagsins. Brýnast er nú að endurbæta aðstöðu fyrir lengda viðveru, endurbyggja skólalóð við Hafnarskóla og bæta mataraðstöðu nemenda. Til lengri tíma litið stefnum við að því að sameina grunnskólann í eitt húsnæði, sem mun styrkja skólastarf og bæta aðstöðu nemenda og starfsfólks.
Lifandi samfélag
Viðhald og endurbætur á félagsheimilum í dreifbýli eru nauðsynlegar til að styðja við fjölbreytt starf í samfélögunum í dreifbýli sveitarfélagsins. Mikligarður hefur lengi verið til umræðu og með nýju miðbæjarskipulagi við höfnina skapast tækifæri til uppbyggingar þar sem hluti hússins verður varðveittur og nýttur fyrir menningar- og listastarfsemi.
Með skýrri sameiginlegri sýn, ábyrgri forystu og raunhæfum aðgerðum getum við knúið fram þær framfarir sem samfélagið kallar eftir. Verkefnin eru fjölmörg, en með festu í forgangsröðun og vilja til að framkvæma munum við skila árangri fyrir íbúa.
Björgvin Óskar Sigurjónsson, 3. sæti Framsóknar og stuðningsmanna




