11. sæti Lars Jóhann Andrésson Imsland

80

Ég heiti Lars Jóhann Andrésson Imsland, fæddur og uppalinn á Höfn í Hornafirði árið 1975 og hef ég búið alla mína ævi hér á Hornafirði. Ég er fyrst og fremst fjölskyldumaður. Konan mín er Elsa Gerður Hauksdóttir og saman eigum við þrjá syni; Júlíus Aron, Björgvin Frey og Elís Mána.

Fjölskyldan er minn grunnur og drifkraftur í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Árið 2021 stofnuðum ég og eiginkona mín East Coast Travel ehf, fólks og ferðaþjónustu fyrirtæki með sérleyfi í samstarfi við Vegagerðina og Strætó, leið 94, Höfn – Djúpivogur – Breiðdalsvík sem og ferðir sér hannaðar eftir þörfum viðskiptavina. Einnig stofnuðum við ECT verk sem sinnir fasteignaumsjón og viðhaldi.

Síðasta kjörtímabil sat ég sem varamaður í almannavarnarnefnd og í svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs, auk þess að vera aðalmaður í skólanefnd FAS. Sú reynsla hefur verið lærdómsrík og aukið skilning minn á mikilvægi samvinnu, ábyrgðar og þess að vanda til verka í þágu samfélagsins. Í Sveitarfélaginu Hornafjörður eru gríðarleg tækifæri – náttúrufegurðin og staðsetningin tala sínu máli. En það sem skiptir máli er hvernig við nýtum þessi tækifæri. Það þarf að framkvæma og vinna verk af metnaði og fagmennsku ekki bara af því og einhvernvegin. Við þurfum að taka sveitarfélagið okkar fastari tökum. Það þarf að fara í átak í umhverfinu – götur, gangstéttir, skilti og almennt viðhald eiga að vera í lagi. Þetta snýst ekki bara um útlit – þetta snýst um virðingu fyrir staðnum okkar og fyrir fólkinu sem býr hér.

Framtíðin er þó ekki síður mikilvæg. tryggjum að unga fólkið okkar hafi raunhæfan möguleika á að snúa aftur heim að námi loknu eða bara eftir að hafa svalað ævintýraþránni, Það þýðir störf af öllu tagi ekki bara hámennta störf heldur allskonar tækifæri og ekki síst húsnæði á viðráðanlegu verði og stærð. Ef við náum ekki að skapa þessar aðstæður, þá stöðnum við.

Samfélag sem virkilega stendur undir nafni einkennist af umhyggju, samkennd og því að enginn sitji eftir. Við eigum að skapa samfélag þar sem allir finna að þeir skipta máli. Ég vil sjá meira frumkvæði, meiri metnað og skýrari forgangsröðun í sveitarfélaginu í sátt og samvinnu með samfélaginu öllu. Ég býð mig fram vegna þess að mér er ekki sama. Ég vil leggja mitt af mörkum til að gera gott samfélag enn betra – fyrir okkur sem búum hér í dag og fyrir komandi kynslóðir.