Ég heiti Ásgerður Kristín Gylfadóttir og skipa 14. sæti lista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra.
Ég er 57 ára, gift Friðriki Jónasi Friðrikssyni rafvirkja og sjúkraflutningamanni, móðir Arons Martins, Jönu Mekkínar og Friðriks Björns, amma Hjartar Loga Aronssonar og tengdamamma Elísabetar og Stefáns Reynis.

Ég útskrifaðist með Bs gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1994 og MS í heilbrigðisvísindum frá Háskólanum á Akureyri 2025. Í dag starfa ég við hjúkrun á heilsugæslu HSU á Höfn. Þá hef ég verið kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn frá árinu 2010, setið í bæjarráði frá þeim tíma og í ýmsum nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, landshlutasamtaka og Sambands íslenskra sveitarfélaga samhliða því.

Áhugamál mín snúa að velferð og hreyfingu, ferðalögum bæði innanlands og utan og góðum stundum með fjölskyldu og vinum. Þá er fátt betra en að slaka á með góða bók, gleyma sér við að pússla eða leysa orðaleiki.
Undanfarin sextán ár hefur hugurinn þó aðallega verið tengdur samfélaginu okkar í Sveitarfélaginu Hornafirði, áskorunum þess, verkefnum og vexti.
Það hefur verið mikill heiður að fá að starfa í umboði íbúa sveitarfélagsins og er ég óendanlega þakklát fyrir þann tíma, tækifærin og reynsluna sem ég hef öðlast.
Kæri hornfirðingur, ég óska eftir stuðningi þínum við lista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra í kosningunum 16. maí nk. Listann skipa öflugir einstaklingar með fjölbreytta þekkingu og reynslu sem ég er sannfærð um að muni nýtast sveitarfélaginu vel – XB

Ásgerður Kristín Gylfadóttir 14. sæti hjá Framsókn og stuðningsmönnum á Hornafirði





