4. sæti Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir

244

 Ég heiti Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir, en ef þú kallar mig eitthvað annað en Kollu Bjöss, þá veit ég líklega ekkert við hvern þú ert að tala!

Ég er fædd á því herrans ári 1976, sem þýðir að ég stefni óðfluga í átt að fimmtugsafmælinu. Það er dásamlegur aldur þar sem maður hefur öðlast dýrmæta lífsreynslu en á samt nóg af orku og „drive-i“ í tankinum til að láta hlutina gerast.

Ég er stoltur „innfluttur“ Hornfirðingur. Ég kom hingað 17 ára þegar pabbi minn, Bjössi í bræðslunni, gerðist verksmiðjustjóri. Planið var kannski að staldra stutt við, en Hornafjörður hefur þennan einstaka eiginleika að grípa mann og sleppa ekki takinu. Hér fann ég heimilið mitt, hér byggðum við Ingi Stefán okkar líf og hér vil ég halda áfram að láta gott af mér leiða.

Fjölskyldan er kjarninn

Ég er ríkari en orð fá lýst. Ég er gift Inga Stefáni og saman eigum við þrjú dásamleg börn sem öll eru flogin úr hreiðrinu og farin að láta að sér kveða. Svo má auðvitað ekki gleyma nýjasta „verkefninu“ mínu, en það er að dekra við litla ömmu strákinn minn. Hann er áminningin mín á hverjum degi um hvers vegna við viljum gera samfélagið okkar sem allra best fyrir komandi kynslóðir.

Lífið utan vinnunnar

Þegar ég er ekki í Sporthöllinni að hvetja fólk áfram, þá finnur þú mig líklega úti í náttúrunni. Ég elska útiveru og ferðalög og fátt jafnast á við frelsið sem fylgir því að þeysast um á mótorhjólinu með Inga . Það er þar sem ég hleð batteríin – í vindinum og frelsinu á opnum vegi. En þótt frelsið sé skemmtilegt á veginum, þá er það vinnan með fólki sem gefur mér mest.

Brú á milli kynslóða

Í starfi mínu sem sjúkraliði, jógakennari og markþjálfi mæti ég fólki á öllum æviskeiðum. Ein af mínum uppáhalds stundum í vikunni er heilsuefling eldri borgara í Sporthöllinni. Kraftinum, lífsgleðinni og sögunum sem þessi hópur deilir með mér eru ómetanlegt. Þau byggðu þetta samfélag og við eigum að tryggja að þeim líði vel og búi við þá virðingu sem þau eiga skilið.

Á sama tíma sé ég unga fólkið okkar leggja hart að sér í námi og vinnu. Ég vil búa svo um hnútana að þegar þau fara út í heim til að mennta sig, sjái þau raunverulegan hag í því að koma heim aftur. Við þurfum fjölbreytt og spennandi atvinnutækifæri hér í sveitarfélaginu svo okkar menntaða unga fólk geti vaxið og dafnað í heimabyggð.

Af hverju Framsókn?

Ég valdi Framsókn því ég trúi á samvinnu. Ég er ekki í framboði til þess að berjast fyrir eigin hagsmunum, heldur til að vinna með og fyrir allt það góða fólk sem hér býr. Ég vil vera rödd sem hreyfir við hlutunum, spyr spurninga og finnur lausn sem þjónar hagsmunum fjöldans. 

Ég er ekkert hrædd við að taka pláss og fylgja málum eftir – en ég geri það alltaf með bros á vör, opnum huga og hag íbúanna að leiðarljósi.

Hreyfum við hlutunum saman! 

Kolla Bjöss 4. sæti hjá Framsókn og stuðningsfólki í Hornafirði