Ég heiti Ingibjörg Sveinsdóttir og skipa 2.sæti B-lista Framsóknar og stuðningsmanna. Ég er 44 ára grunnskólakennari og bý á Höfn ásamt eiginmanni mínum Stefáni Þór og þremur börnum, Berglindi 17 ára, Unni Mist 13 ára og Tristani Þór 11 ára og hundinum Þór. Ég hef starfað við kennslu mestan hluta ferilsins en samhliða kennslunni hef ég sinnt fyrirtækjarekstri fjölskyldunnar og í dag starfa ég alfarið á veitingastaðnum okkar Íshúsinu.
Ég hef ávallt haft áhuga á hvers kyns útivist og hreyfingu. Ég stundaði lengi hestamennsku og tók þátt í ungliðastarfi björgunarsveitar. Í dag finnst mér fátt skemmtilegra en að renna mér á skíðum með fjölskyldunni ásamt því að hlaupa um fjöll og firnindi og spila golf í góðu veðri. Á yngri árum lagði ég einnig stund á tónlistarnám og hef tekið þátt í kórastarfi og var til að mynda um hríð í Kvennakór Hornafjarðar.
Ég er alin upp á Kjalarnesi en við hjónin höfum búið á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem við bjuggum um hríð í Sviss þar sem við sinntum námi.

Ég útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið 2002 og árið 2008 sem Grunnskólakennari frá Háskóla Íslands. Þá hef ég sinnt ýmiss konar endurmenntun tengdri menntun og velferð barna og unglinga.
Það má segja að örlögin hafi gripið í taumana sumarið 2003 þegar ég ákvað 21 árs gömul að skella mér á humarhátíð á Höfn. Þar kynntist ég manninum mínum og féll strax fyrir bænum, fólkinu og fjöllunum. Það var svo árið 2010 að við hjónin ákváðum að venda kvæði okkar í kross og flytja austur ásamt elstu dóttur okkar. Þegar ég hugsa til baka þá voru það fyrst og fremst tveir þættir sem áttu stærstan þátt í að við festum hér rætur. Annars vegar var það góð grunnþjónusta og hinsvegar tækifæri til uppbyggingar. Þegar við fluttum hingað árið 2010 fékk dóttir okkar sem þá var tveggja ára strax leikskólapláss, sem var alls ekki sjálfgefið í mörgum sveitarfélögum landsins á þeim tíma. Mér fannst líka skipta máli að hér var góð heilbrigðisþjónusta og svo fékk ég vinnu á frábærum vinnustað, Grunnskóla Hornafjarðar. Hér höfum við líka haft tækifæri til að byggja upp eigin rekstur, fyrst í Skaftafelli og síðar á Höfn.


Hafandi starfað á þeim vettvangi eru skóla- og menntamál mér ofarlega í huga og ég geri mér grein fyrir hversu mikilvæg góð grunnþjónusta er fyrir samfélagið, á sama tíma er mikilvægt að skapa raunveruleg tækifæri til atvinnu og uppbyggingar fyrir íbúa samfélagsins.
Ég vonast til að fá ykkar umboð til að geta lagt mitt á vogarskálarnar við að tryggja áframhaldandi vöxt og velferð fyrir alla íbúa sveitarfélagsins á komandi árum.





