Ég heiti Haukur Ingi Einarsson og skipa 12 sæti lista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra. Ég er 45 ára, giftur Berglindi Steinþórsdóttur ferðamálafræðingi og kennara og eigum við saman þrjú börn, Tómas Nóa, Anrey og Steinþór.
Ég fæddist í Reykjavík 1980, en fluttist á Höfn tveggja ára gamall og ólst þar upp. Ég hef svo í seinni tíð notið þeirra forréttinda að vera með annan fótinn í Suðursveit þar sem við hjónin rekum tvö fyrirtæki. Glacier Adventure sem er afþreyingar ferðaþjónusta og Skyrhúsið sem er gistiheimili. Ég er hagfræðingur að mennt, en einnig Jöklaleiðsögumaður, foreldrar mínir eru Einar Sveinn Ingólfsson og Ingibjörg Hauksdóttir og tengdaforeldrar mínir eru þau Steinþór Torfason á Hala og Ólöf Anna Guðmundsdóttir á Hal.

Ég sótti leikskólann Lönguhóla sem barn og gekk í gegnum Hafnarskóla og Heppuskóla. Ég tók virkan þátt í íþróttastarfi og spilaði knattspyrnu með Sindra. Eftir nám, kom ég til baka og vann hjá Sveitarfélaginu Hornafirði sem Framkvæmdastjóri Fjármála- og framkvæmdasviðs og öðlast þar dýrmæta reynslu úr sveitarfstjórnarmálum og rekstur sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Svæðið er mér afar mikilvægt og kært, ég hef gefið tíma minn til félagsstarfa svo sem verið í stjórn Knattspyrnudeildar Sindra, gegnt formennsku í Ríki Vatnajökuls og endurvakti Ferðamálafélag Austur Skaftafellssýslu og sinnti þar formennsku.
Ég vill styðja við þetta góða fólk sem skipar lista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra með minni þekkingu, reynslu og brennandi áhuga á að skapa aðstæður fyrir Hornafjörð að vera framúrskarand búsetu svæði og þar sem þvífast öflug og sjálfbær atvinnutækifæri.
Haukur Ingi Einarsson 12. sæti hjá Framsókn og stuðningsmönnum á Hornafirði




