10. sæti Sigursteinn Ingvar Traustason

334

Ég heiti Sigursteinn Ingvar Traustason, fæddur árið 2007 og uppalinn á Höfn. Mamma mín heitir Hugrún Harpa Reynisdóttir og er forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs og pabbi minn heitir Trausti Magnússon en hann er deildarstjóri framkvæmda og þjónustu hjá sveitarfélaginu. 

Ég hef mikinn áhuga á útivist, silungsveiði og byggingageiranum og svo finnst mér fátt skemmtilegra en að grilla, elda góðan mat og rækta sambandið við fólkið mitt. 

Menntun og reynsla 

Þegar ég var í grunnskóla sat ég í ungmennaráði í þrjú ár og þar af var ég eitt ár sem formaður og á þessum tíma sat ég einnig í hafnarstjórn. Þessi ár í ungmennaráði kenndu manni margt og þá sérstaklega um mikilvægi þess að rödd ungs fólks fái að heyrast. Eins kenndu þau mér að það skiptir máli að taka þátt í að skapa gott samfélag.

Í vor útskrifast ég sem stúdent og tækniteiknari frá Tækniskólanum. Sú menntun hefur aukið enn frekar áhuga minn á byggingageiranum og skipulagsmálum, sem ég tel lykilþætti í framtíðarþróun sveitarfélagsins. 

Áherslur mínar 

Ég legg sérstaka áherslu á: 

  • Að ná betur til ungs fólks og tryggja að rödd þeirra og málefni fái vægi 
  • Að skapa skilyrði sem hvetja ungt fólk til að flytja heim að námi loknu 

Mér er sérstaklega umhugað um að efla skólakerfið okkar og styrkja FAS með því að fjölga iðngreinum. Stór hluti nemenda hefur þurft að flytja frá Höfn eftir 10. bekk til að sækja iðnnám annars staðar. Ég tel mikilvægt að skapa fleiri tækifæri hér heima svo ungt fólk geti valið fjölbreytt nám án þess að þurfa að flytja burt. 

Ég flutti sjálfur burt eftir fyrsta ár mitt í FAS til þess að læra tækniteiknun í Reykjavík. Ég endaði þó á því að taka námið í fjarnámi frá Tækniskólanum vegna þess að ég vildi vera heima á Höfn.  

Það er vissulega hægt að vera heima þegar námið fer allt fram í tölvu, en staðan verður flóknari þegar um verklegt nám er að ræða. Þar liggur áskorunin. Við verðum að bæta aðgengi að verk- og iðnnámi hér heima ef við ætlum að halda ungu fólki í sveitarfélaginu. 

Hvað er gott – og hvað má bæta 

Ég er þeirrar skoðunar að styrkur sveitarfélagsins liggi í okkar einstöku náttúru, öflugu atvinnulífi og svo auðvitað fólkinu sjálfu. 

Mér finnst sérstaklega mikilvægt að við hlúum vel að þeim landbúnaði sem við höfum á svæðinu og að jafnvægi sé í uppbyggingu í okkar einstaka umhverfi. Ferðaþjónustan er mikilvæg atvinnugrein, en hún má ekki þróast á kostnað náttúrunnar, landbúnaðarins eða annarra grunnstoða samfélagsins. Við þurfum að byggja skynsamlega, vernda það sem við eigum og tryggja að þróunin þjóni fyrst og fremst íbúunum sjálfum. 

 Ég vil sjá aðgerðir sem auðvelda ungu fólki að eignast sína fyrstu eign, hér vantar okkur kannski helst íbúðir sem henta sem fyrsta eign.

Að lokum 

Ég vil leggja mitt að mörkum til þess að styrkja samfélagið okkar og skapa hér fjölbreytt tækifæri fyrir okkur öll.